Þegar herinn sneri heim, eftir að Davíð hafði fellt Filisteann, fóru konur úr öllum borgum Ísraels á móti Sál konungi. Þær sungu og dönsuðu fagnandi og léku á bumbur og symbala.
Daginn eftir hljóp illur andi frá Guði í Sál. Rann á hann æði inni í húsinu á meðan Davíð lék á hörpuna eins og hann gerði dag hvern. Sál hafði spjót í hendi
Hann sendi því Davíð frá sér og gerði hann að foringja yfir þúsund manna herliði. Fór Davíð fyrir liðinu þegar það hélt að heiman og þegar það sneri aftur heim.
Einhverju sinni sagði Sál við Davíð: „Hér er Merab, elsta dóttir mín. Ég skal gefa þér hana að konu ef þú reynist mér hraustur maður og berst í bardögum Drottins.“ En Sál hugsaði með sér: „Ég skal ekki leggja hendur á hann heldur skulu Filistear verða til þess.“
því að hann hugsaði með sér: „Ég skal gefa honum hana svo að hún verði honum að tálsnöru og Filistear nái honum á sitt vald.“ Sál sagði því öðru sinni við Davíð: „Nú getur þú orðið tengdasonur minn.“
En Sál bauð þjónum sínum að tala við Davíð svo að lítið bæri á og segja við hann: „Konunginum fellur vel við þig og þú ert vinsæll meðal allra þjóna hans. Nú getur þú orðið tengdasonur konungs.“
Þjónar Sáls fluttu Davíð þessi skilaboð og hann svaraði: „Finnst ykkur það lítils virði að verða tengdasonur konungsins? Ég er fátækur maður og lítils háttar.“
En Sál svaraði: „Þetta skuluð þið segja Davíð: Konungur kærir sig ekki um annað brúðarverð en forhúðir hundrað Filistea. Með því vill hann hefna sín á fjandmönnum sínum.“ Þannig gerði Sál ráð fyrir að Davíð félli í hendur Filisteum.
bjó Davíð sig, fór ásamt mönnum sínum og felldi tvö hundruð menn úr liði Filistea. Davíð færði konunginum síðan forhúðir þeirra, allar með tölu, svo að hann gæti orðið tengdasonur hans. Sál gaf honum þá Míkal, dóttur sína, fyrir eiginkonu.
Höfðingjar Filistea héldu áfram að gera árásir. En í hvert skipti sem þeir fóru í leiðangur gekk Davíð betur en nokkrum öðrum liðsmanni Sáls. Nafn hans varð því víðfrægt.