Þar safnaðist að honum alls konar fólk sem hafði verið beitt órétti, var skuldugt eða óánægt. Gerðist hann foringi þess. Voru nú með honum um fjögur hundruð manns.
Davíð fór þaðan til Mispe í Móab og sagði við konunginn í Móab: „Leyfðu föður mínum og móður að koma og dveljast hjá ykkur þangað til ég veit hvað Guð hyggst fyrir með mig.“
Sál frétti að Davíð og menn hans væru fundnir. Einhverju sinni sat Sál undir eikinni á hæðinni með spjót sitt í hendi og stóðu allir hirðmenn hans umhverfis hann.
Sál sagði þá við hirðmennina sem voru hjá honum: „Hlustið nú á mig, niðjar Benjamíns. Nú ætlar sonur Ísaí sjálfsagt að gefa ykkur öllum beitilönd og víngarða og gera ykkur alla að foringjum yfir þúsund eða hundrað manna liði
af því að þið hafið allir gert samsæri gegn mér. Enginn sagði mér að sonur minn hefði gert sáttmála við son Ísaí. Enginn ykkar fann til með mér og enginn trúði mér fyrir því að sonur minn hefði fengið þjón minn til að sitja fyrir mér eins og nú er orðið.“
Þá sagði Sál við hann: „Hvers vegna hafið þið sonur Ísaí gert samsæri gegn mér? Þú gafst honum brauð og sverð og leitaðir fyrir hann svara hjá Guði svo að hann gæti risið gegn mér og sest um mig eins og komið er á daginn.“
Ahímelek svaraði konungi og sagði: „Hver hirðmanna þinna hefur reynst jafntraustur og Davíð? Hann er tengdasonur konungs, foringi lífvarðar þíns og í miklum metum í fjölskyldu þinni.
Var það fyrst nú í dag að ég leitaði svara hjá Guði fyrir hann? Því fer víðs fjarri. Konungur ætti ekki að ákæra mig, þjón sinn, og alla ætt mína því að ég, þjónn þinn, hafði alls enga hugmynd um þetta mál.“
Því næst sagði konungurinn við lífverðina sem stóðu umhverfis hann: „Umkringið presta Drottins og drepið þá því að þeir hafa hjálpað Davíð. Þeir vissu að hann var á flótta en sögðu ekki til hans.“ En menn konungs vildu ekki lyfta hendi til að höggva presta Drottins.
Þá sagði konungurinn Dóeg að fara og höggva prestana. Þá gekk Dóeg frá Edóm fram og hjó prestana. Þennan dag felldi hann áttatíu og fimm menn sem báru línhökla.
sagði Davíð við hann: „Ég vissi það þá þegar, úr því að Dóeg frá Edóm var þar, að hann mundi segja Sál frá því. Það er mín sök að öll ætt föður þíns er dáin.