Þá leitaði Davíð svara hjá Drottni og spurði: „Á ég að fara og ráðast á Filisteana?“ Drottinn svaraði honum: „Farðu og herjaðu á Filisteana og bjargaðu Kegílu.“
En menn Davíðs sögðu við hann: „Meira að segja hér í Júda erum við stöðugt hræddir, hvað þá ef við eigum að fara niður til Kegílu og gegn fylkingum Filistea.“
Þá leitaði Davíð aftur svara hjá Drottni. Drottinn svaraði honum og sagði: „Haltu af stað og farðu niður til Kegílu. Ég mun selja Filistea í hendur þér.“
Þá fór Davíð ásamt mönnum sínum til Kegílu, réðst á Filistea, sem biðu mikinn ósigur, og rak búfé þeirra burt. Þannig bjargaði Davíð íbúum Kegíluborgar.
Sál var tilkynnt að Davíð væri kominn til Kegílu og sagði: „Guð hefur selt hann mér í hendur. Hann er orðinn fangi sjálfs sín með því að loka sig inni í borg með hliðum og slagbröndum.“
Munu ráðamenn Kegíluborgar selja mig og menn mína í hendur honum? Kemur Sál hingað niður eftir eins og þjónn þinn hefur fregnað? Drottinn, Guð Ísraels, svara þú þjóni þínum.“ Drottinn svaraði: „Hann kemur.“
Davíð fór því af stað ásamt mönnum sínum, um sex hundruð talsins. Þeir héldu frá Kegílu og fóru stefnulaust um landið. Þegar Sál frétti að Davíð hefði sloppið heill á húfi frá Kegílu hætti hann við herförina.
Davíð hafðist nú við í klettavirkjum í eyðimörkinni. Hann bjó um sig í fjöllunum í Sífeyðimörk. Sál leitaði hans án afláts en Guð seldi hann ekki í hendur honum.
og sagði: „Vertu óhræddur því að hönd Sáls, föður míns, mun ekki ná þér. Þú verður konungur yfir Ísrael og ég mun ganga næst þér. Þetta veit Sál, faðir minn.“
Nú fóru nokkrir menn frá Síf upp til Sáls í Gíbeu og sögðu: „Veistu ekki að Davíð hefur falið sig hjá okkur í klettavirkjunum í Hóres, á Hakílahæð, sunnan við Jesímon?
Farið nú og undirbúið þetta frekar. Haldið uppi njósnum og komist að því hvar Davíð heldur sig og hver hafi séð hann. Mér er sagt að hann sé mjög slægur.
Finnið alla staði þar sem hann hefði getað falið sig, kannið þá og komið aftur til mín með öruggar upplýsingar. Þá fer ég með ykkur. Ef hann er í landinu skal ég leita hans meðal allra ættbálka Júda.“
Sál og menn hans héldu af stað til að leita hans og þegar Davíð var skýrt frá því hélt hann niður að kletti einum og var um kyrrt í Maoneyðimörk. Þegar Sál frétti það veitti hann Davíð eftirför inn í eyðimörkina.
Sál fór öðrum megin við fjallið en Davíð og menn hans hinum megin. Davíð flýtti sér þá sem mest hann mátti til að komast undan Sál. Þegar við lá að Sál og menn hans hefðu umkringt Davíð og menn hans og gripið þá