Þá sögðu menn Davíðs við hann: „Nú er dagurinn kominn sem Drottinn talaði um þegar hann sagði við þig: Ég mun selja fjandmann þinn í hendur þér svo að þú getir gert við hann það sem þér þóknast.“ Davíð reis á fætur og skar bút af skikkjunni sem Sál bar, án þess að nokkur yrði þess var.
og sagði hann við menn sína: „Drottinn forði mér frá því að gera annað eins og þetta gegn herra mínum, Drottins smurða. Drottinn forði mér frá því að leggja hendur á hann því að hann er Drottins smurði.“
Þá reis Davíð á fætur, gekk út úr hellinum og kallaði á eftir Sál: „Herra minn, konungur.“ Þegar Sál leit við hneigði Davíð sig til jarðar, varpaði sér niður fyrir honum
Þú hefur nú séð með eigin augum að Drottinn seldi þig í hendur mínar í hellinum í dag. Ég var hvattur til að drepa þig en ég þyrmdi þér og sagði: Ég legg ekki hendur á húsbónda minn því að hann er Drottins smurði.
Sjáðu, faðir minn, líttu á. Ég held á bút af skikkju þinni í hendi mér. Af því að ég skar bút af skikkju þinni en drap þig ekki getur þú séð og skilið að ég hef hvorki uppreisn í huga né neitt illt og að ég hef ekki gerst brotlegur gegn þér. Það ert þú sem sækist eftir lífi mínu.