Í Maon var maður nokkur sem átti bú sitt í Karmel. Hann var vellauðugur og átti þrjú þúsund fjár og þúsund geitur. Nú var hann að rýja sauðfé sitt í Karmel.
Ég hef frétt að verið sé að rýja fyrir þig. Þegar hirðar þínir héldu fénu á beit hjá okkur gerðum við þeim ekkert mein enda hefur ekkert vantað af fénu þann tíma sem þeir hafa verið í Karmel.
Spyrðu vinnumenn þína, þeir geta sjálfir sagt þér þetta. Taktu þessum unglingum því vinsamlega. Við komum á hátíðisdegi. Gefðu því þjónum þínum og Davíð, syni þínum, það sem þú hefur við höndina.“
Þá sagði Davíð við menn sína: „Gyrðist allir sverðum ykkar.“ Þeir gerðu það og Davíð gyrti sig sjálfur sverði sínu. Síðan fóru þeir upp eftir með Davíð í broddi fylkingar og voru þeir um það bil fjögur hundruð saman. Tvö hundruð menn urðu eftir og gættu farangursins.
Einn af vinnumönnum Nabals hafði skýrt Abígail, konu hans, frá þessu og sagt: „Davíð hefur sent menn úr eyðimörkinni með kveðju til húsbónda okkar sem svaraði með fúkyrðum.
Samt voru þeir mjög vingjarnlegir við okkur. Þeir áreittu okkur ekki og aldrei vantaði neitt af fénu allan tímann sem við héldum okkur í námunda við þá í haganum.
Hugsaðu þig nú um og reyndu að láta þér detta í hug hvað þú getir gert því að ógæfa blasir við húsbónda okkar og allri fjölskyldu hans. Hann er svo bráður að ekki er hægt að yrða á hann.“
Abígail sótti þá í skyndi tvö hundruð brauð, tvo vínbelgi, fimm dilka, fimm seur af ristuðu korni, hundrað rúsínukökur og tvö hundruð fíkjukökur. Hún lagði þetta á asna
Rétt í því hafði Davíð sagt: „Það var þá til einskis að ég gætti í eyðimörkinni alls sem þessi maður á. Ekkert vantaði af eigum hans en hann launar mér gott með illu.
Herra minn, skiptu þér ekki af þessu illmenni, honum Nabal. Hann ber nafn með rentu: heimskingi heitir hann og heimskingi er hann. Herra minn, ég, ambátt þín, sá ekki einu sinni ungu mennina sem þú sendir.
En, herra, svo sannarlega sem Drottinn lifir og svo sannarlega sem þú lifir þá hefur Drottinn hindrað að þú bakaðir þér blóðskuld með því að taka málið í þínar hendur. Þess vegna fari fyrir fjandmönnum herra míns og þeim sem vilja honum illt eins og fyrir Nabal.
Fyrirgefðu framhleypni ambáttar þinnar. Drottinn mun áreiðanlega láta þá ætt, sem af herra mínum kemur, stöðuga standa. Sökum þess að þú, herra minn, heyr stríð fyrir Drottin verður ekkert illt fundið hjá þér meðan þú lifir.
En veitist einhver að þér og sækist eftir lífi þínu mun líf herra míns bundið fast í knippi lifandi manna hjá Drottni, Guði þínum. En lífi fjandmanna þinna mun hann slöngva í burtu.
þá skal það ekki verða þér til falls né íþyngja samvisku þinni að þú hafir úthellt blóði að ástæðulausu, herra minn, með því að taka réttinn í þínar hendur. Þegar Drottinn gerir vel við herra minn minnstu þá ambáttar þinnar.“
En svo sannarlega sem Drottinn, Guð Ísraels, lifir sem forðaði mér frá því að vinna þér mein, þá hefði ekki nokkur af karlmönnum Nabals verið á lífi í fyrramálið ef þú hefðir ekki komið svona fljótt til móts við mig.“
Þegar Abígail kom heim til Nabals var hann að veislu í húsi sínu sem konungur væri. Nabal var hinn kátasti og mjög drukkinn. Þess vegna sagði hún honum ekkert fyrr en birti af degi.
Þegar Davíð frétti að Nabal væri dáinn sagði hann: „Lofaður sé Drottinn sem hefur rekið réttar míns og veitt mér uppreisn æru. Hann hefur forðað þjóni sínum frá því að vinna ódæði en látið illsku Nabals koma honum í koll.“ Síðan sendi Davíð boð til Abígail um að hann ætlaði að taka hana sér fyrir eiginkonu.
Abígail steig þegar í stað á bak asna sínum og fimm þjónustustúlkur hennar fylgdu henni. Fylgdist hún með sendimönnum Davíðs og gerðist eiginkona hans.