Davíð hugsaði mér sér: „Sá dagur kemur að ég fell fyrir hendi Sáls. Ég sé ekki annað vænna en leita hælis í landi Filistea. Þá hættir Sál að leita mín um allt land Ísraels og þannig geng ég honum úr greipum, heill á húfi.“
Davíð settist að hjá Akís í Gat ásamt mönnum sínum. Höfðu þeir allir fjölskyldur sínar með sér og Davíð báðar konur sínar, Akínóam frá Jesreel og Abígail frá Karmel, sem verið hafði eiginkona Nabals.
Einhverju sinni sagði Davíð við Akís: „Ef þú vilt mér vel, fáðu mér þá bústað í einhverri af borgunum á sléttunni svo að ég geti sest þar að. Hvers vegna ætti þjónn þinn að búa hjá þér í konungsborginni?“
Davíð og menn hans fóru í ránsferðir gegn Gesúrmönnum, Girsítum og Amalekítum en þessar þjóðir hafa frá alda öðli búið í landinu sem veit að Súr og Egyptalandi.
Þegar Davíð réðst á þetta land þyrmdi hann hvorki lífi karla né kvenna en sauðfé, naut, asna, úlfalda og fatnað tók hann með sér. Þegar hann sneri heim og kom aftur til Akíss
Davíð lét hvorki karla né konur komast lifandi til Gat því að hann hugsaði með sér: „Enginn skal geta sagt: Þetta er verk Davíðs.“ Þetta var háttur hans allan tímann sem hann bjó á Filisteasléttunni.