Um þessar mundir kvöddu Filistear út her sinn til að ráðast á Ísrael. Þá sagði Akís við Davíð: „Þú veist vel að þú og menn þínir verðið að fara með mér í hernaðinn.“
Davíð svaraði Akís: „Þá muntu komast að raun um hvað þjónn þinn gerir.“ Þá sagði Akís: „Gott og vel. Ég geri þig að sérlegum lífverði mínum héðan í frá.“
Samúel var dáinn og allur Ísrael hafði grátið hann. Hann var grafinn í heimaborg sinni, Rama. En Sál hafði rekið alla miðla og spásagnarmenn úr landinu.
Þá skipaði Sál þjónum sínum: „Finnið fyrir mig særingakonu svo að ég geti farið til hennar og leitað úrskurðar hennar.“ Þjónar hans svöruðu honum: „Í Endór er særingakona.“
Sál dulbjó sig til að þekkjast ekki og fór ásamt tveimur fylgdarmönnum til konunnar um nótt. Hann sagði: „Láttu anda flytja mér spámæli. Vektu upp þann sem ég nefni.“
Konan svaraði: „Þú hlýtur að vita hvað Sál hefur gert. Hann hefur upprætt miðla og spásagnamenn úr landinu. Hvers vegna ertu að leggja gildru fyrir mig? Ætlarðu að drepa mig?“
Hann spurði hana: „Hvernig lítur hún út?“ Hún svaraði: „Gamall maður, sveipaður skikkju, stígur upp.“ Þá skildi Sál að það var Samúel, hneigði andlit sitt til jarðar og varpaði sér niður.
Þá sagði Samúel við Sál: „Hvers vegna hefurðu raskað ró minni og látið vekja mig upp?“ Sál svaraði: „Ég á nú í miklum þrengingum. Filistear ráðast á mig og Guð hefur yfirgefið mig. Hann svarar mér ekki lengur, hvorki fyrir munn spámanna né í draumum. Þess vegna hef ég kallað þig fram til þess að þú segir mér hvað ég á að gera.“
Drottinn hefur gert þér það sem hann boðaði af munni mínum. Drottinn hefur rifið konungdóminn úr hendi þér og fengið hann öðrum, hann hefur fengið hann Davíð.
Sál féll jafnskjótt endilangur til jarðar því að hann varð skelfingu lostinn við orð Samúels. Auk þess var hann máttvana því að hann hafði ekki neytt matar í heilan sólarhring.
Þegar konan kom til Sáls og sá hversu óttasleginn hann var sagði hún: „Ambátt þín hlýddi skipun þinni. Ég hætti lífi mínu með því að gera eins og þú baðst mig.
En nú skalt þú gera það sem ambátt þín fer fram á. Ég ætla að færa þér matarbita svo að þú fáir að borða og þér aukist þróttur áður en þú leggur af stað.“