Í þann tíma drógu Filistar saman her sinn og bjuggust að fara í hernað móti Ísrael. Og Akís sagði við Davíð: “Vita skaltu, að þú verður að fara með mér í leiðangurinn, bæði þú og menn þínir.”
Samúel var dáinn, og allur Ísrael hafði syrgt hann og jarðað hann í Rama, hans eigin borg. En Sál hafði gjört landræka alla andasæringamenn og spásagnamenn.
Þá sagði Sál við þjóna sína: “Leitið fyrir mig að særingakonu, svo að ég geti farið til hennar og leitað frétta hjá henni.” Og þjónar hans sögðu við hann: “Í Endór er særingakona.”
Sál gjörði sig torkennilegan og klæddist dularbúningi og lagði af stað og tveir menn með honum. Þeir komu til konunnar um nótt, og Sál sagði: “Lát þú andann spá mér og lát koma fram þann, er ég nefni til við þig.”
Konan svaraði honum: “Sjá, þú veist, hvað Sál hefir gjört, að hann hefir upprætt úr landinu alla andasæringamenn og spásagnamenn. Hví leggur þú þá snöru fyrir mig til þess að deyða mig?”
Hann sagði við hana: “Hvernig er hann í hátt?” Hún svaraði: “Gamall maður stígur upp og er hjúpaður skikkju.” Þá skildi Sál, að það var Samúel, og hneigði andlit sitt til jarðar og laut honum.
Þá sagði Samúel við Sál: “Hví hefir þú ónáðað mig og látið kalla mig fram?” Sál mælti: “Ég er í miklum nauðum staddur. Filistar herja á mig, og Guð er frá mér vikinn og svarar mér ekki lengur, hvorki fyrir milligöngu spámannanna né í draumum. Fyrir því lét ég kalla þig, til þess að þú segir mér, hvað ég á að gjöra.”
Drottinn hefir þá við þig gjört, eins og hann hefir sagt fyrir minn munn. Drottinn hefir rifið frá þér konungdóminn og gefið hann öðrum, gefið Davíð hann.
Og Drottinn mun og gefa Ísrael ásamt þér í hendur Filista, og á morgun munt þú og synir þínir hjá mér vera. Drottinn mun og gefa her Ísraels í hendur Filista.”
Þá varð Sál hræddur og féll endilangur til jarðar, og hann skelfdist mjög af orðum Samúels. Hann var og magnþrota, því að hann hafði eigi matar neytt allan daginn og alla nóttina.
Konan gekk nú til Sáls, og er hún sá, hversu mjög hann var felmtsfullur, sagði hún við hann: “Sjá, ambátt þín hefir hlýtt raustu þinni, og ég hefi lagt líf mitt í hættu, og ég hefi gjört það, sem þú baðst mig um.
En hann færðist undan og sagði: “Eigi vil ég eta.” En er bæði menn hans og konan lögðu að honum, þá lét hann að orðum þeirra og stóð upp af gólfinu og settist á rúmið.