Þegar Davíð og menn hans komu til Siklag á þriðja degi höfðu Amalekítar farið í ránsferð inn í Negeb og til Siklag. Þeir höfðu tekið borgina og brennt hana.
Davíð átti nú í vök að verjast. Liðsmenn hans vildu grýta hann, svo bitrir voru þeir vegna sona sinna og dætra. En Davíð leitaði styrks hjá Drottni, Guði sínum,
Davíð leitaði síðan svara hjá Drottni og spurði: „Á ég að elta þennan ræningjaflokk? Mun ég ná honum?“ Drottinn svaraði: „Eltu þá. Þú nærð þeim örugglega og frelsar þá sem teknir voru til fanga.“
Nú spurði Davíð hann: „Hver er húsbóndi þinn og hvaðan kemur þú?“ Hann svaraði: „Ég er Egypti, þræll Amalekíta nokkurs. Húsbóndi minn skildi mig hér eftir af því að ég veiktist fyrir þremur dögum.
Þá spurði Davíð: „Geturðu vísað okkur á þennan ræningjaflokk?“ Hann svaraði: „Sverðu við Guð að þú munir ekki drepa mig og ekki selja mig í hendur húsbónda mínum. Ef þú gerir það skal ég vísa þér á ræningjaflokkinn.“
Þegar hann hafði vísað þeim þangað sáu þeir að ræningjarnir voru dreifðir um allar jarðir, átu og drukku og gerðu sér glaðan dag vegna hins mikla ránsfengs sem þeir höfðu tekið í landi Filistea og Júda.
Daginn eftir hjó Davíð þá niður frá því að gránaði af degi og til kvölds. Enginn þeirra komst undan nema fjögur hundruð ungir menn sem komust á bak úlföldum sínum og flýðu.
Þegar Davíð kom aftur til þeirra tvö hundruð manna, sem höfðu verið of máttfarnir til að fylgja honum og voru skildir eftir við Besórlæk, gengu þeir á móti Davíð og flokknum sem með honum var. Þegar Davíð og menn hans voru komnir til þeirra heilsaði hann þeim.
En allir ódrengir og illmenni, sem voru í hópi þeirra sem fylgt höfðu Davíð, sögðu: „Af því að þeir fóru ekki með okkur látum við þá ekki fá neitt af herfanginu sem við höfum tekið. Samt má hver þeirra fá konu sína og börn og fara sína leið.“
En Davíð sagði: „Bræður mínir, svona megið þið ekki fara með það sem Drottinn hefur gefið okkur. Hann hefur verndað okkur og selt ræningjaflokkinn, sem réðst á okkur, okkur í hendur.
Hvernig getur nokkur maður hlustað á það sem þið segið um þetta mál? Nei, hlutur þess sem fór til orrustunnar skal vera jafn hlut þess sem gætti farangursins. Herfanginu skal skipta jafnt.“
Þegar Davíð kom heim til Siklag sendi hann hluta af herfanginu til öldunganna í Júda, sem voru vinir hans, og lét skila til þeirra: „Þetta er gjöf til ykkar, hluti af herfangi sem ég hef tekið af fjandmönnum Drottins.“